Gugga: Ekkert leyndarmál að við erum betra lið
Auglýsing

Guðbjörg á landsliðsæfingu í vikunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðbjörg á landsliðsæfingu í vikunni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er gaman að koma saman aftur. Við fengum góðan tíma fyrir þennan leik og þurftum á því að halda,\" sagði Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður landsliðsins við Fótbolta.net í gær en liðið mætir Færeyjum í undankeppni HM 2019 á Laugardalsvelli annað kvöld.
Þetta er fyrsti leikur liðsins eftir vonbrigðin á Evrópumótinu í sumar þar sem liðið tapaði öllum sínum leikjum.
„Við erum búin að tala um þessi vonbrigði lengi og það er gott að geta lagt þau að baki sér og byrja á einhverju nýju.\"
Ísland mætir Færeyjum á Laugardalsvelli klukkan 18:15 annað kvöld. Flestir búast við auðveldum leik.
„Það er ekkert leyndarmál að við erum betra lið og það er oft þannig í fótbolta að út á við kalla fjölmiðlar þetta skyldusigur. Þetta er það en við þurfum að mæta með hausin í lagi, spila vel og láta boltann ganga hratt svo við fáum góð færi. Fótbolti er alltaf fótbolti, það getur allt gerst og við þurfum að vera einbeittar á verkefnið.\"
Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu hér að ofan. Hún ræðir þar líka að liðið mætir besta liði heims, Þýskalandi, í öðrum leiknum í undankeppninni.
„Mér persónulega finnst geggjað að mæta Þýskalandi í leik sem skiptir ógeðslega miklu máli í Þýskalandi. Sem markvörður fæ ég ekki betri áskorun en það. Ég get ekki séð að ég geti fengið skemmtilegri leik,\" sagði hún.



