Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 17. september 2019 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ívar Orri dæmir leik í Unglingadeild UEFA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ívar Orri Kristjánsson mun dæma leik Leverkusen og Lokomotiv Moskva í Unglingadeild UEFA.

Leikurinn fer fram í Leverkusen á morgun, miðvikudaginn 18. september.

Honum til aðstoðar verða þeir Birkir Sigurðarson og Kristján Már Ólafs.

Það hefur verið nóg að gera hjá Ívari á undanförnum dögum. Hann var fjórði dómari á bikarúrslitaleik Víkings R. og FH á laugardag og á sunnudag dæmdi hann stórleik Breiðabliks og Vals í Pepsi Max-deild kvenna.
Athugasemdir
banner
banner
banner