15.09.26 - 15:30
Kári Snorrason
Ótrúlegur viðsnúningur Farke með Leeds

Með fimmta besta árangur deildarinnar síðan Farke breytti um kerfi.

Mynd: EPA

Leeds ekki byrjað betur síðan tímabilið 2001/02.

Leeds vann stórsigur á Newcastle í gærkvöldi og hefur liðið ekki byrjað ensku úrvalsdeildina betur í tæpan aldarfjórðung.
Leeds er með átta stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar og hefur liðið í raun verið meðal bestu liða deildarinnar eftir að þýski stjórinn Daniel Farke breytti um leikkerfi undir lok síðasta árs.

Mikill hiti var á Farke snemma síðasta tímabils og voru stuðningsmenn liðsins margir hverjir farnir að kalla eftir brottrekstur Þjóðverjans.
Hann breytti úr fjögurra manna varnarlínu í þriggja manna í hálfleik gegn Manchester City 29. nóvember. Leeds vann þar upp tveggja marka forskot en City skoraði sigurmark leiksins í uppbótartíma.
Breytingarnar lofuðu góðu og vann Leeds sigur á Chelsea í næsta leik þar á eftir. Síðan þá hefur Leeds tapað fimm af 29 deildarleikjum.
Sá árangur myndi skila liðinu fimmta sæti deildarinnar á þeim tíma.

Mynd: BBC