Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 17. september 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Unnur Dóra og Kristrún Rut framlengja við Selfoss
Unnur Dóra Bergsdóttir
Unnur Dóra Bergsdóttir
Mynd: Raggi Óla

Unnur Dóra Bergsdóttir og Kristrún Rut Antonsdóttir hafa framlengt samninga sína við Selfoss, Unnur Dóra til tveggja ára og Kristrún Rut til eins árs. 


Unnur Dóra er 22 ára miðjumaður en hún hefur verið fyrirliði liðsins í sumar. Hún lék sína fyrstu leiki með Selfossi aðeins sextán ára gömul.

Kristrún gekk til liðs við Selfoss árið 2021. Hún hefur leikið 141 meistaraflokksleik fyrir Selfoss, þar af 73 í efstu deild.

Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, segir það mikið gleðiefni að þessir tveir leikmenn hafi ákveðið að framlengja samninga sína við félagið.

„Unnur er fyrirliðinn okkar og hún hefur tekið miklum framförum á tímabilinu. Það verður spennandi að fylgjast með henni halda áfram að þroska leik sinn. Kristrún byrjaði tímabilið af miklum krafti og var algjör lykill að sterkri pressu liðsins auk þess að gefa mikið í sóknarleikinn með sínu óeigingjarna vinnuframlagi. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá henni síðari hluta mótsins en við hlökkum mikið til að taka upp þráðinn aftur þegar hún nær heilsu,“ segir Björn.


Athugasemdir
banner
banner