17.09.26 - 18:02
Brynjar Ingi Erluson
Arna lagði upp sigurmarkið

Arna Eiríks lagði upp sigurmark Vålerenga undir lok leiks

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arna Eiríksdóttir lagði upp sigurmark Vålerenga sem vann 2-1 sigur á Haugesund í 16. umferð norsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.
Arna var í vörn Vålerenga á meðan Fanney Inga Birkisdóttir stóð á milli stanganna.
Vålerenga komst yfir á 12. mínútu en gestirnir jöfnuðu sjö mínútum síðar.
Sigurmarkið kom þegar sjö mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Arna lagði þá upp fyrir hina 18 ára gömlu Marie Preus sem tryggði Vålerenga sigurinn.
Vålerenga er á miklu skriði og hefur nú unnið fjóra deildarleiki í röð. Liðið er í 4. sæti með 31 stig.
Selma Sól Magnúsdóttir sat allan tímann á bekknum hjá Rosenborg sem vann Stabæk 4-2. Rosenborg er í 3. sæti með 36 stig og vann þar sinn fimmta deildarleik í röð.