17.09.26 - 16:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Aron Fannar: Staðráðnir í að gera þetta aftur
Auglýsing

Aron Fannar og Daði Snær, fyrirliði Hauka, með Fótbolta.net bikarinn.

Mynd: KSÍ - Óskar Örn Guðbrandsson

Þjálfarar og leikmenn með gripinn.

Aron Fannar Birgisson, leikmaður Selfoss, ræddi við Fótbolta.net í dag. Tilefnið er leikur Selfoss gegn Haukum á morgun en liðin mætast á Laugardalsvelli, klukkan 19:00, í úrslitaleik Gatorade bikars Fótbolta.net.
Liðin enduðu í 1. og 2. sæti 2. deildar í sumar og verða í Lengjudeildinni á næsta tímabili.

„Við prófuðum þetta fyrir tveimur árum og vorum staðráðnir í að gera þetta aftur. Ég er mjög sáttur að vera kominn hingað aftur."
„Við erum búnir að fá smjörþefinn af þessu, þetta er ógeðlsega gaman og gerði árið mikið betra þegar við fórum í þennan leik síðast."
„Það eru reynslumiklir leikmenn hjá þeim en við tökum eflaust einhverja reynslu úr síðasta leik okkar hér, margir sem upplifðu þetta 2024 og vita um hvað þetta snýst."
„Haukarnir eru búnir að eiga frábært tímabil og við kláruðum okkar tímabil vel, þannig þetta verður bara hörkuleikur."
Aron Fannar býst við góðri mætingu hjá Selfyssingum á morgun og boðið er upp á rútuferðir. „Við treystum á að bæjarbúar fjölmenni á leikinn."
Selfoss kemur á góðu skriði inn í leikinn, liðið vann marga leiki undir lok tímabils og tryggði sér sæti í Lengjudeildinni.