Fotbolti.net
17.09.26 - 20:40
Brynjar Ingi Erluson

Eigendur PSG kaupa fyrrum félag Alfreðs og Guðlaugs Victors

KAS Eupen er komið í eigu QSI

KAS Eupen er komið í eigu QSI

Canon

Mynd: QSI

Qatar Sports Investments (QSI) hefur formlega gengið frá kaupum á belgíska félaginu Eupen, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í dag.
Greint var frá því undir lok síðasta árs að QSI, sem á einnig Paris Saint-Germain og Braga, væri í viðræðum um kaup á Eupen.

Margir Íslendingar þekkja belgíska félagið vel en Alfreð Finnbogason og Guðlaugur Victor Pálsson voru báðir á mála hjá Eupen tímabilið 2023-2024. Eftir það tímabil lagði Alfreð skóna á hilluna og sneri sér að stjórnendastörfum bak við tjöldin í fótboltanum.

QSI hefur stýrt aðgerðum hjá Eupen síðustu mánuði þrátt fyrir að kaupin hafi ekki verið formlega frágengin. Nú hefur hins vegar verið gengið frá þeim og er Eupen þar með enn eitt íþróttafélagið sem kemst í eigu katarska ríkisins.

Eupen leikur í belgísku B-deildinni og situr þar í 4. sæti með níu stig eftir fjóra leiki.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.