Fotbolti.net
17.09.26 - 18:33
Brynjar Ingi Erluson

Enes Þór Cogic framlengir í Mosó

Feðgarnir og nafnarnir Enes Cogic

Feðgarnir og nafnarnir Enes Cogic

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Enes Þór Enesson Cogic, leikmaður Lengjudeildarmeistara Aftureldingar, mun leika áfram með félaginu næstu tvö árin, en þetta staðfestir félagið í dag.
Hinn tvítugi Enes er uppalinn hjá Aftureldingu og lék sautján leiki þegar liðið vann Lengjudeildina í sumar og tryggði sér beint aftur upp í Bestu deildina.

Hann kom einnig við sögu í fjórum bikarleikjum þegar Afturelding komst í úrslit keppninnar í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Afturelding hefur nú tryggt sér krafta hans til lengri tíma en Enes hefur skrifað undir nýjan samning sem gildir út árið 2028.

Enes kemur úr mikilli fótboltafjölskyldu. Faðir hans, Enes Cogic, kom fyrst hingað til lands frá Bosníu árið 1992 og lék meðal annars með Fylki, ÍR, Selfossi og Haukum. Hann hefur þjálfað um árabil og er nú aðstoðarmaður Magnúsar Más Einarssonar hjá meistaraflokki karla.

Eldri bróðir Enes er Elmar Kári, sem hefur verið mikilvægur leikmaður Aftureldingar undanfarin ár. Hann skoraði átta mörk í deild og bikar í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.