17.09.26 - 18:45
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Ævintýrið heldur áfram á Krít

Kontis er að gera stórkostlega hluti með OFI Crete

Mynd: EPA

Lúkas var á bekknum hjá Hoffenheim

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenski U21 landsliðsmaðurinn Lúkas Petersson var í leikmannahópi Hoffenheim sem tapaði fyrir gríska liðinu OFI Crete, 2-0, í deildarkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld.
Tapið kemur líklega á óvart á pappír en Christos Kontis, þjálfari OFI, virðist vera að byggja upp eitthvað sérstakt.
Hann gerði OFI að bikarmeisturum í vor og hefur byggt ofan á þann árangur með sigri á deildarmeisturum AEK í Ofurbikarnum og svo með því að koma liðinu í Evrópudeildina í gegnum forkeppnina.
Það byrjaði deildarkeppnina í kvöld með 2-0 sigri á Hoffenheim. Spænski sóknartengiliðurinn Aitor skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið áður en Georgios Kanellopoulos innsiglaði sigurinn undir lok leiks.
OFI er frá Krít og er klárlega eitt af þeim liðum sem vert er að fylgjast með í keppninni í vetur. Liðið spilar agaðan varnarleik, er erfitt að brjóta niður og eru hraðar skyndisóknir og föst leikatriði þeirra helsta vopn í sóknarleiknum.
Lúkas sat allan tímann á bekknum hjá Hoffenheim og fékk því að upplifa rafmagnað andrúmsloftið á vellinum, þar sem stuðningsmenn liðsins frá Krít létu vel í sér heyra enda að fagna sögulegum fyrsta sigri í keppninni.
Á sama tíma vann austurríska liðið Salzburg 1-0 sigur á Levski frá Búlgaríu. Haris Tabakovic skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu.
Levski 0 - 1 Salzburg
0-1 Haris Tabakovic ('39 )
OFI 2 - 0 Hoffenheim
1-0 Aitor Cantalapiedra ('30 )
2-0 Georgios Kanellopoulos ('84 )