17.09.26 - 21:02
Brynjar Ingi Erluson
Evrópudeildin: Orra brást bogalistin í tapi gegn Bournemouth - B-deildarlið vann í Noregi

Orri Steinn fékk tvö dauðafæri til að jafna undir lokin, en Djordje Petrovic sá við honum í bæði skiptin

Mynd: EPA

Rayan skoraði annað mark Bournemouth

Mynd: EPA

Nick Woltemade skoraði í sigri Juventus

Mynd: EPA

Torreense vann óvæntan sigur á Lilleström

Óvænt úrslit litu dagsins ljós í síðustu leikjum fyrstu umferðar Evrópudeildarinnar í kvöld. Portúgalska B-deildarliðið Torreense vann Lilleström 2-1 í Noregi á meðan Orri Steinn Óskarsson byrjaði hjá Real Sociedad sem tapaði 2-1 fyrir Bournemouth í kaflaskiptum leik. Orri fékk tvö dauðafæri undir lokin til að jafna metin en tókst ekki að nýta þau.
Torreense vann portúgalska bikarinn með ótrúlegum hætti í vor og varð þar með aðeins þriðja B-deildarliðið í sögu landsins til að taka þátt í Evrópukeppni. Félagið er jafnframt það fyrsta úr B-deildinni sem kemst alla leið í deildarkeppni.
Byrjunin í deildinni hefur ekki verið sérstök, en Torreense virðist ætla að koma á óvart í Evrópu. Liðið gerði sér lítið fyrir og vann Lilleström 2-1 í Noregi.
Alejandro Alfaro kom Portúgölunum yfir á 23. mínútu og Manuel Pozo bætti við öðru marki skömmu eftir hlé. Vel af sér vikið hjá Torreense, sem fær Sunderland í heimsókn í næstu umferð.
Orri Steinn Óskarsson byrjaði hjá Real Sociedad sem tapaði 2-1 fyrir Bournemouth í mjög kaflaskiptum leik á Spáni.
Bournemouth hafði mikla yfirburði í fyrri hálfleik og hefði hæglega getað verið meira en tveimur mörkum yfir í leikhléi. Justin Kluivert skoraði á 11. mínútu og níu mínútum síðar bætti Rayan við öðru marki með skalla eftir frábæra sendingu frá Alex Scott.
Evanilson átti einnig skalla í stöng og Sociedad mátti því vel við una að vera aðeins tveimur mörkum undir í hálfleik. Spánverjarnir voru í miklu veseni en komu mun líflegri til leiks eftir hlé.
Sergio Gomez minnkaði muninn þegar fyrirgjöf hans fór í gegnum allan pakkann og endaði í fjærhorninu.
Goncalo Guedes kom inn á í hálfleik og lífgaði verulega upp á sóknarleik Sociedad. Orri hafði haft úr litlu að moða fram að því en fékk tvö dauðafæri til að jafna undir lokin.
Í fyrra skiptið slapp hann inn á milli varnarmanna en Djordje Petrovic varði frábærlega. Skömmu síðar fékk Orri annað dauðafæri af stuttu færi en Petrovic sá aftur við honum. Ekki kvöldið hans.
Jöfnunarmarkið lá í loftinu á lokakaflanum en Bournemouth hélt út og fagnaði sínum fyrsta sigri í Evrópudeildinni. Slakur fyrri hálfleikur reyndist Sociedad dýrkeyptur.
Stórsigur hjá Palace
Crystal Palace vann á sama tíma sannfærandi 4-0 sigur á Lech Poznan. Yeremy Pino fékk fyrsta markið nánast gefins á 10. mínútu þegar varnarmaður Poznan tók furðulegt langt innkast í átt að eigin marki. Pino komst inn í sendinguna, lyfti boltanum yfir varnarmann og skoraði.
Chris Richards bætti við öðru marki á 27. mínútu með hörkuskalla á fjærstöng eftir hornspyrnu Adam Wharton og sjö mínútum síðar skoraði Jörgen Strand Larsen úr vítaspyrnu.
Radoslaw Murawski, leikmaður Poznan, fékk rautt spjald undir lokin og skömmu síðar bætti Eddie Nketiah við fjórða markinu. Glæsileg byrjun hjá Palace.
Juventus fór síðan illa með NEC Nijmegen og vann 5-0 í Tórínó. Nicolas Gonzalez og Kerim Alajbegovic komu Juventus í 2-0 áður en Nick Woltemade bætti við þriðja markinu úr vítaspyrnu.
Eftir hlé bættu Zeki Celik og Randal Kolo Muani við mörkum áður en flautað var til leiksloka. Willum Þór Willumsson sat allan tímann á bekknum hjá Nijmegen.
Besiktas vann Marseille 4-1, Celtic tapaði 3-1 fyrir Ferencvaros og belgíska liðið Union Saint-Gilloise vann Viktoria Plzen 3-0.
Besiktas 4 - 1 Marseille
1-0 Ilhan Fakili ('15 )
1-1 Keyliane Abdallah ('29 )
2-1 Vaclav Cerny ('56 )
3-1 Amir Murillo ('59 )
4-1 Ernest Poku ('81 )
Celtic 1 - 3 Ferencvaros
0-1 Bamidele Yusuf ('20 )
1-1 Mika Baur ('44 )
1-2 Kristoffer Zachariassen ('45 )
1-3 Daniel Arzani ('47 )
Crystal Palace 4 - 0 Lech
1-0 Yeremy Pino ('10 )
2-0 Chris Richards ('27 )
3-0 Jorgen Strand Larsen ('34 , víti)
4-0 Edward Nketiah ('89 )
Rautt spjald: Radoslaw Murawski, Lech ('87)
Plzen 0 - 3 St. Gilloise
0-1 Relebohile Mofokeng ('17 )
0-2 Mateo Biondic ('43 )
0-3 Ondrej Kricfalusi ('59 )
Juventus 5 - 0 NEC
1-0 Nico Gonzalez ('9 )
2-0 Kerim Alajbegovic ('24 )
3-0 Nick Woltemade ('35 , víti)
4-0 Zeki Celik ('75 )
5-0 Randal Kolo Muani ('82 )
Lillestrom 1 - 2 Torreense
0-1 Alejandro Alfaro ('23 )
0-2 Manuel Pozo ('49 )
1-2 Thomas Olsen ('79 )
Rautt spjald: Nuha Jatta, Torreense ('85)
Real Sociedad 1 - 2 Bournemouth
0-1 Justin Kluivert ('11 )
0-2 Rayan ('20 )
1-2 Sergio Gomez ('58 )