Fotbolti.net
17.09.26 - 19:36
Brynjar Ingi Erluson

Íslendingaliðið í toppmálum - Oskar skoraði annan leikinn í röð

Oskar Sverris er sjóðandi heitur með Trelleborg

Oskar Sverris er sjóðandi heitur með Trelleborg

Canon

Mynd: Guðmundur Svansson

Vinstri bakvörðurinn Oskar Sverrisson var á skotskónum annan leikinn í röð er Trelleborg vann 4-3 sigur á Rosengård í sænsku C-deildinni í kvöld.
Oskar hefur farið frábærlega af stað síðan hann kom til félagsins frá AFC Malmö í byrjun árs.

Hann skoraði fyrra mark Trelleborg í 2-1 sigri á Hässleholm í síðasta leik og komst aftur á blað í kvöld þegar hann skoraði þriðja mark liðsins.

Þetta var fjórða mark Oskars á tímabilinu og hann virðist njóta sín vel hjá toppliðinu.

Bjarni Mark Antonsson, sem gekk til liðs við Trelleborg frá Val á dögunum, var einnig í byrjunarliðinu. Trelleborg er með þriggja stiga forskot á toppi suðurriðilsins þegar átta umferðir eru eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.