17.09.26 - 18:22
Brynjar Ingi Erluson
Klopp skýtur á blaðamenn - „Mér finnst það sorglegt“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Jürgen Klopp, þjálfari þýska landsliðsins, kynnti í dag sinn fyrsta landsliðshóp fyrir komandi verkefni í Þjóðadeildinni en var óánægður með að stórum hluta hópsins hafði verið lekið fyrir blaðamannafundinn.

TENGT EFNI
Klopp velur 16 nýliða í 44 manna hóp
Margir blaðamenn komu að því að leka upplýsingum um þýska landsliðshópinn áður en hann var opinberaður. Florian Plettenberg hjá Sky gekk þó hvað lengst og birti nánast allan hópinn á samfélagsmiðlum, en nöfn birtust einnig hjá BILD og Kicker.
Meðal þeirra sem var sagt frá fyrirfram var Felix Keidel, fremur óþekktur leikmaður Elversberg. Klopp var spurður út í lekann og var ekki sérstaklega hrifinn.
„Ég ræddi við Felix Keidel aftur í gærkvöldi og spurði hann hvernig síðustu 16-17 klukkutímarnir hefðu verið eftir að einhver lak því að hann yrði í hópnum.“
„Mér er í raun drullu sama um að hópurinn hafi komið út fyrr en hann átti að gera, en mér finnst samt svolítið sorglegt að fólk hafi atvinnu af því að henda svona upplýsingum fram áður en nokkur þarf í raun að vita af þeim. En þannig er þetta,“ sagði Klopp.
Klopp valdi mjög áhugaverðan 44 manna hóp og virðist ætla að nota næstu landsleiki til að skoða eins marga leikmenn og mögulegt er, en sextán nýliðar eru í hópnum.