17.09.26 - 19:48
Brynjar Ingi Erluson
Mbappe: Vil koma Gullboltanum aftur á Bernabeu

Kylian Mbappe ætlar að vinna Ballon d'Or

Mynd: EPA

Lamine Yamal kemur einnig til greina

Franski sóknarmaðurinn Kylian Mbappe er sannfærður um að hann eigi góða möguleika á að vinna Ballon d'Or-verðlaunin eftirsóttu í næsta mánuði.

TENGT EFNI
Mbappe: Enginn átti betra tímabil en ég
Mbappe er einn af þeim sem koma sterklega til greina í baráttunni um Ballon d'Or í ár.
Meðal helstu keppinauta hans eru Rodri, Lamine Yamal, Harry Kane og Michael Olise, en Mbappe telur tímann vera kominn.
„Mín skoðun er sú að þetta sé gott ár til að vinna verðlaunin. Fæturnir mínir eru mínir helstu talsmenn og í raun mikilvægari en allt annað,“ sagði Mbappe.
Frá 2010 til 2022 vann leikmaður Real Madrid verðlaunin sex sinnum. Cristiano Ronaldo gerði það fjórum sinnum, Luka Modric einu sinni og Karim Benzema, sem var síðasti Madrídingurinn til að hampa verðlaununum, vann þau árið 2022.
„Ég vil koma Ballon d'Or aftur til Real Madrid. Verðlaunin eiga að snúa aftur á Bernabeu og til Madrídinga. Ég vil endurgjalda allt sem þetta fólk hefur gefið mér og gefa því eitthvað til að gleðjast yfir. Það á það skilið meira en nokkur annar,“ sagði hann.
Yamal hefur verið stórkostlegur með Barcelona og spænska landsliðinu og mun veita Mbappe harða samkeppni um verðlaunin. Frakkinn fór fögrum orðum um kollega sinn.
„Lamine Yamal er ótrúlega hæfileikaríkur leikmaður og ég hef það á tilfinningunni að hann eigi eftir að eiga frábæran feril. Ég óska honum alls hins besta,“ sagði Mbappe.