Fotbolti.net
17.09.26 - 23:34
Brynjar Ingi Erluson

Segir Man Utd að reka Carrick og fá Emery - „Af hverju ætti hann að vilja það?“

Michael Carrick

Michael Carrick

Canon

Mynd: EPA

Sparkspekingarnir Jamie O'Hara og Jason Cundy ræddu stjórastöðuna hjá Manchester United og hvort félagið ætti að láta Michael Carrick fara. Þeir voru algjörlega ósammála en Cundy nefndi Unai Emery sem fullkominn mann í starfið.
Carrick: Getum ekki sætt okkur við þetta
TENGT EFNI

Carrick: Getum ekki sætt okkur við þetta

Man Utd gerði frábæra hluti undir stjórn Michael Carrick á síðari hluta síðasta tímabils eftir að hann tók við af Ruben Amorim. Hann kom liðinu í Meistaradeildina og allt annað var að sjá til liðsins.

Byrjunin á þessu tímabili hefur hins vegar verið slök. United hefur aðeins unnið einn af fyrstu fjórum deildarleikjunum og tapað tveimur. Liðið vann slakt Sabah-lið sannfærandi í Meistaradeildinni en tapaði síðan 3-2 fyrir Brighton í deildabikarnum í gær.

O'Hara segir allt of snemmt að fara að ræða stöðu Carrick.

„Við ætlum ekki að fara að ræða nýjan stjóra. Við erum ekki að fara að eiga það samtal og ég vil ekki heyra stuðningsmenn Man Utd tala um hvern þeir gætu fengið í staðinn. Það er ekki hægt að halda áfram að skipta um stjóra. Man Utd er eins og Tottenham. Það er vandamál þarna og það er hugarfarslegt. Þetta snýst ekkert um stjórann. Það skiptir engu máli hvern þú færð inn, vandamálin verða áfram til staðar,“ sagði O'Hara á talkSPORT.

Cundy var hins vegar algjörlega ósammála og sagði United eiga að reka Carrick strax.

„Unai Emery. Farið og sækið hann. Takið hann frá Villa. Það er það sem ég myndi gera ef ég væri Sir Jim Ratcliffe. Ég myndi nýta þetta tap og sækja hann. Ekki bíða fram að jólum með þetta samtal, gerið það núna,“ sagði Cundy.

Cundy er oft dramatískur í skoðunum sínum og O'Hara reyndi að draga aðeins úr honum.

„Ég veit ekki hvort Unai Emery vilji taka við Man Utd. Af hverju ætti hann að vilja fara þangað? Hann er ekki að fara að yfirgefa Villa á þessum tímapunkti.“

„Þú sagðir sjálfur að United væri illa statt fjárhagslega. Þeir þyrftu þá að reka Carrick og kaupa Emery út fyrir 10-15 milljónir punda, en þú sagðir að þeir ættu engan pening.“

„Ég held að þetta hafi verið slæmt kvöld hjá United, í raun skelfilegt kvöld, en menn þurfa aðeins að slaka á,“
sagði O'Hara að lokum.
Cundy vill að Man Utd fái Emery frá Villa

Cundy vill að Man Utd fái Emery frá Villa

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.