Fotbolti.net
17.09.26 - 22:12
Brynjar Ingi Erluson

Sjáðu táninginn skora tvennu fyrir Man City - „Trúði þessu varla“

Sjáðu táninginn skora tvennu fyrir Man City - „Trúði þessu varla“
Canon

Mynd: Man City

Floyd Samba átti draumafrumraun með Manchester City í 5-0 stórsigri á Norwich City í enska deildabikarnum í kvöld. Hann skoraði tvö mörk og var stórkostlegur í leiknum.
Enski deildabikarinn: 17 ára með stórleik í frumrauninni
TENGT EFNI

Enski deildabikarinn: 17 ára með stórleik í frumrauninni

Samba er aðeins 17 ára gamall og sonur fyrrum fótboltamannsins Christopher Samba sem lék meðal annars með Blackburn Rovers og landsliði Kongó.

Hann hefur verið að gera góða hluti með yngri liðum Manchester City undanfarin ár og var tekinn inn í aðalliðshópinn í sumar.

Englendingurinn hefur þurft að bíða eftir tækifærinu en það kom loksins í kvöld og nýtti hann það til fulls. Samba skoraði tvö lagleg mörk og kom einnig við sögu í öðru marki liðsins.

„Í gær, rétt fyrir leikinn, vissi ég að ég myndi fá tækifæri til að spila einhverjar mínútur með aðalliðinu í fyrsta sinn, en ekki í mínum villtustu draumum gat mig órað fyrir þessu. Ég trúði þessu varla, en þetta er bara byrjunin. Ég á vonandi langan feril framundan og frumraunin var frábær.“

„Ég gæti varla verið ánægðari núna. Þetta var minn fyrsti leikur í meistaraflokki og maður veit að ákefðin og gæðin eru á allt öðru stigi. Maður þarf að standast það og halda í við hina og mér fannst ég gera það vel.“

„Það er stórt stökk að fara úr U21-liðinu og inn á æfingar hjá aðalliðinu. Æfingarnar taka meira á, maður þarf að hlaupa meira og það er einfaldlega krafist meira af manni. Maður verður bara að halda áfram og þrauka.“


Samba fékk góð ráð frá liðsfélögum sínum fyrir leikinn og segist nú spenntur fyrir framhaldinu.

„Ég talaði við alla og þeir hafa verið stórkostlegir við mig. Fyrir leikinn gáfu þeir mér ráð, sögðu mér að spila minn leik og vera ég sjálfur. Þessi orð gáfu mér sjálfstraust og hjálpuðu mér að skora þessi tvö mörk.“

„Ég get ekki beðið eftir framhaldinu. Nú tekur endurheimtin við og svo keyrum við aftur af stað. Það er æfing á morgun og Sunderland um helgina þannig að allir þurfa að undirbúa sig fyrir það,“
sagði Samba.


Hápunktar úr leiknum:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.