Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   lau 17. október 2020 15:47
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Everton og Liverpool: Thiago bestur
Mynd: Getty Images
Everton og Liverpool gerðu 2-2 jafntefli í opnunarleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Sadio Mane, Mo Salah, Michael Keane og Dominic Calvert-Lewin skoruðu mörkin í leiknum.

Mikið var rætt um VAR í leiknum og má lesa meira um leikinn með því að skoða fréttir síðustu klukkutíma hér á Fótbolti.net.

Hér að neðan má sjá eikunnagjöf Sky Sports þar sem leikmenn leiksins fá einkunn fyrir frammistöðu sína á vellinum. Thiago Alcantara stóð upp úr og fékk átta í einkunn. Andre Gomes þótti verstur á vellinum, hann fékk fimm í einkunn.

Einkunnir Sky Sports:
Everton: Pickford (7), Coleman (6), Mina (6), Keane (7), Digne (7), Doucoure (6), Allan (7), Andre Gomes (5), Rodriguez (7), Calvert-Lewin (7), Richarlison (6).

Varamenn: Iwobi (6), Godfrey (7).


Liverpool: Adrian (6), Alexander-Arnold (7), Matip (7), van Dijk (6), Robertson (7), Henderson (7), Fabinho (7), Thiago (8), Salah (7), Firmino (6), Mane (7).
Varamenn: Gomez (6), Jota (6).

Maður leiksins: Thiago Alcantara.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner