Fotbolti.net
17.10.26 - 09:51
Brynjar Ingi Erluson

Afleit byrjun hjá Morata

Alvaro Morata

Alvaro Morata

Canon

Mynd: EPA

Spænski framherjinn Alvaro Morata hefur ekki farið vel af stað með Leganes í spænsku B-deildinni, en hann er enn án marks og byrjunin því langt frá því sem hann hafði vonast eftir.
Morata, sem er 33 ára gamall, ákvað óvænt að fara niður í spænsku B-deildina í sumar eftir að hafa leikið með mörgum af stærstu félögum Evrópu á ferlinum.

Spánverjinn hefur skorað yfir 250 mörk fyrir félagslið og landslið og var lengi vel iðinn við kolann hjá Atlético Madríd, Juventus, Real Madrid og Chelsea, en undanfarin misseri hefur honum gengið afleitlega að finna netmöskvana.

Á síðustu leiktíð skoraði hann aðeins eitt mark fyrir Como, í bikarkeppninni, en tímabilið þar á undan lék hann með bæði AC Milan og Galatasaray.

Morata ákvað að snúa aftur heim til Spánar í sumar og gekk nokkuð óvænt til liðs við Leganes í B-deildinni á láni frá Como, en þar hefur honum heldur ekki tekist að snúa blaðinu við.

Hann er enn án marks eftir sjö leiki og til að bæta gráu ofan á svart fékk hann rauða spjaldið í 1-0 tapi gegn Cordoba í gær. Leganes hefur sömuleiðis átt erfitt uppdráttar, tapað fimm af fyrstu átta deildarleikjunum og aðeins unnið tvo.

Það hefur því heldur betur hallað undan fæti hjá Morata sem varð Evrópumeistari með Spáni fyrir aðeins tveimur árum.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.