Arnór Ingvi mætti yngsta bróður: Þetta var eiginlega bara súrrealískt

Arnór Ingvi Traustason leikmaður KR og bróðir hans Viktor Árni.

Mynd: Keflavík/Instagram

Arnór Ingvi Traustason leikmaður KR og bróðir hans Viktor Árni.

Mynd: Keflavík/Instagram
KR tryggði sér annað sæti Bestu deild karla í dag þegar þeir unnu góðan sigur á Keflavík á HS Orku vellinum í dag.
„Þetta var erfitt með veður" sagði Arnór Ingvi Traustason leikmaður KR eftir sigurinn í dag.
„Mér fannst við eiga góðan fyrri hálfleik en þetta skiptist og þeir eiga svo góðan seinni hálfleik eftir því sem að vindurinn einhvernveginn snýst á annað markið"
„Þetta virtist vera auðveldara á eitt markið en þeir komu bara miklu klárari en við út í seinni en svo eftir 2-2 þá finnst mér við ná smá stjórn á leiknum og sköpum svona hálffæri hér og þar en svo er fínt að klára þetta svona seint"
Það hefur verið mikið rætt um það í sumar að KR vinni ekki grasleiki en á því varð breyting í dag.
„Við höfum ekki náð að vinna á grasi og það er alveg satt en mér finnst þessi leikur koma bara á frábærum tíma. Þetta er gott test fyrir okkur og ef ég tala aftur um þetta veður og það er svona í þokkabót á grasi í október þá er þetta bara frábært test fyrir okkur sem við vorum staðráðnir í að vinna, klára og sýna og sanna fyrir okkur sjálfum eiginlega að við gætum þetta sem er fínt að klára þetta svona"
Það var bræðraslagur á miðjunni í dag en Arnór Ingvi Traustason mætti litla bróður sínum Viktor Árna Traustasyni á miðju Keflavíkur í dag.
„Þetta var eiginlega bara súrrealískt. Ég er ennþá að átta mig almennilega á þessu því hann er fjagra ára eða fimm ára þegar ég fer út og ég hef aldrei getað hugsað um það að ég myndi einhvertíman keppa á móti yngsta bróður mínum í fótboltaleik"
„Þetta er falleg stund og ég mun taka þetta með mér og geyma þessa stund" sagði Arnór Ingvi Traustason.
Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 25 | +11 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 5 | ÍA | 25 | -3 | 34 |
| 6 | Keflavík | 26 | -11 | 29 |
