Fotbolti.net
17.10.26 - 13:53
Brynjar Ingi Erluson

Besta deildin: KR-ingar tryggðu sér annað sætið

Gabríel Hrann tryggði KR-ingum annað sætið

Gabríel Hrann tryggði KR-ingum annað sætið

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflavík 2 - 3 KR
0-1 Galdur Guðmundsson ('8 )
0-2 Ástbjörn Þórðarson ('29 )
1-2 Stefan Alexander Ljubicic ('47 )
2-2 Dagur Ingi Valsson ('51 )
2-3 Gabríel Hrannar Eyjólfsson ('89 )
Lestu um leikinn
KR-ingar tryggðu sér annað sætið í Bestu deild karla með dramatískum 3-2 sigri á Keflavík á HS Orku-vellinum í dag, þar sem sigurmarkið kom undir lok leiksins eftir að heimamenn höfðu unnið upp tveggja marka forskot gestanna.

KR-ingar þurftu aðeins rúmar sjö mínútur til að brjóta ísinn þegar Aron Sigurðarson fann Arnór Ingva Traustason fyrir aftan vörn Keflvíkinga. Arnór sendi boltann fyrir markið á Eið Gauta Sæbjörnsson, sem var óeigingjarn og framlengdi hann á Galdur Guðmundsson sem kom KR yfir.

Gestirnir höfðu öll völd á vellinum og um tuttugu mínútum síðar tvöfaldaði Ástbjörn Þórðarson forystuna. Galdur lyfti þá boltanum fyrir markið á Ástbjörn, sem náði góðu skoti í fjærhornið.

KR fór því með þægilega tveggja marka forystu inn í hálfleikinn og var aðeins 45 mínútum frá því að tryggja sér annað sætið í deildinni, en Keflvíkingar voru aldeilis ekki búnir að gefast upp.

Heimamenn komu af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og skoruðu tvö mörk á örfáum mínútum. Eiður Orri Ragnarsson fann Stefan Ljubicic inni í teignum og hann vippaði boltanum laglega yfir Halldór Snæ Georgsson og í netið.

Rúmum þremur mínútum síðar var staðan orðin 2-2 og aftur var Eiður Orri arkitektinn. Hann sendi boltann fyrir markið frá vinstri þar sem Dagur Ingi Valsson stakk sér fram fyrir varnarmann og potaði boltanum í netið.

Það var allt annað að sjá til Keflvíkinga eftir hlé og þegar leið á síðari hálfleikinn voru heimamenn jafnvel líklegri til að bæta við þriðja markinu, en KR-ingar áttu eftir að segja sitt síðasta.

Undir lok leiksins fékk Arnór Ingvi boltann úti hægra megin og sendi hann inn í teiginn á Gabríel Hrannar Eyjólfsson, sem kom á ferðinni og afgreiddi boltann af miklu öryggi í netið. KR-ingar fögnuðu gríðarlega enda höfðu þeir rétt í þessu tryggt sér sigurinn og annað sætið í deildinni.

KR er nú með 53 stig og er komið með öruggt forskot á Fram, sem á ekki lengur möguleika á að ná liðinu. Keflavík er hins vegar í sjötta sæti með 29 stig og getur ekki lengur náð Skagamönnum.
Galdur Guðmunds átti frábæran leik með KR

Galdur Guðmunds átti frábæran leik með KR

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.26+5163
2KR25+2950
3Fram25+1146
4Breiðablik26+236
5ÍA25-334
6Keflavík25-1029
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.