17.10.26 - 20:41
Ívan Guðjón Baldursson
Brynjar Atli hneykslaður og lætur Breiðablik heyra það

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Atli Bragason var varamarkvörður hjá Breiðabliki frá 2021 til 2025 og er hann ekki sáttur með að stuðningsmenn Blika hafi ekki fengið tækifæri til að kveðja Kristin Steindórsson sem er að klára sitt síðasta tímabil með liðinu.

TENGT EFNI
Erfitt að kveðja Breiðablik - „Hafði séð fyrir mér að fá að velja endinn sjálfur“
Kiddi Steindórs rennur út á samningi eftir tímabilið og fær ekki framlengingu í Kópavogi, en hann er 36 ára gamall og hefur spilað mörghundruð leiki fyrir Breiðablik.
Hann ólst upp í Breiðabliki og lék fyrir meistaraflokk frá 2007 til 2011 áður en hann hélt erlendis í atvinnumennsku. Hann snéri aftur til uppeldisfélagsins 2020 og hefur leikið fyrir Blika síðan.
„Í gær hefði væntanlega verið seinasti heimaleikur Kidda Steindórs í blikatreyjunni. 358 leikir fyrir félagið, 50 evrópuleikir, 3x Íslandsmeistaratitlar og 2x bikarmeistaratitlar," segir í færslu frá Brynjari Atla á samfélagsmiðlinum X.
„Ekki eitt orð frá félaginu fyrir leik. Kiddi fékk ekki að koma inn á og stuðningsmenn fengu ekki tækifæri til að kveðja eina af goðsögnum félagsins.
„Kiddi byggði upp sögu félagsins og félagið gat ekki einu sinni séð sóma sinn í að heiðra hann."

Vel gert @BreidablikFC ????
— Brynjar Atli Bragason (@brynjar41) October 17, 2026
Í gær hefði væntanlega verið seinasti heimaleikur Kidda Steindórs í blikatreyjunni.
358 leikir fyrir félagið, 50 evrópuleikir, 3x íslandsmeistaratitlar og 2x bikarmeistaratitlar.
Ekki eitt orð frá félaginu fyrir leik. Kiddi fékk ekki að koma inn á og https://t.co/LC7nv9T4VB

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð