Byrjunarlið Keflavíkur og KR: Eiður Orri fer á bekkinn hjá Keflavík - KR með fjórfalda breytingu
Keflavík gerir tvöfalda breytingu - KR gerir fjórfalda

Eiður Orri Ragnarsson fær sér sæti á bekknum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri Ragnarsson fær sér sæti á bekknum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík tekur á móti KR í Bestu deild karla klukkan 12 í dag en leiknum var flýtt um tvo tíma vegna yfirvofandi veðurs.
KR getur með sigri í dag tryggt sér annað sæti deildarinnar á meðan Keflavík á enn smá vonarglætu með sigri að lyfta sér upp um eitt sæti í lokaumferðinni með hagstæðum úrslitum.
Keflavík gera tvær breytingar á sínu byrjunarliði frá leiknum gegn Breiðablik en inn koma Elvis Bwomono og Ásgeir Páll Magnússon fyrir þá Eið Orra Ragnarsson og Egil Val Karlsson.
KR gera fjórfalda breytingu á sínu liði frá leiknum gegn Fram í síðustu umferð. Inn koma Halldór Snær Georgsson, Ástbjörn Þórðarson, Hrafn Tómasson og Aron Þórður Albertsson fyrir þá Arnar Freyr Ólafsson, Michael Akoto, Sigurð Breka Kárason og Orra Hrafn Kjartansson.
Byrjunarlið Keflavík
- 1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
- 2. Elvis Okello Bwomono
- 3. Axel Ingi Jóhannesson
- 6. Sindri Snær Magnússon (f)
- 7. Dagur Ingi Valsson
- 10. Stefan Alexander Ljubicic
- 20. Marin Brigic
- 21. Alpha Conteh
- 22. Ásgeir Páll Magnússon
- 28. Viktor Árni Traustason
- 88. Mate Simicic
Byrjunarlið KR
- 12. Halldór Snær Georgsson (m)
- 7. Finnur Tómas Pálmason
- 9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
- 11. Aron Sigurðarson (f)
- 17. Luke Morgan Conrad Rae
- 21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
- 22. Ástbjörn Þórðarson
- 23. Arnór Ingvi Traustason
- 26. Hrafn Tómasson
- 29. Aron Þórður Albertsson
- 45. Galdur Guðmundsson
Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 25 | +29 | 50 |
| 3 | Fram | 25 | +11 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 5 | ÍA | 25 | -3 | 34 |
| 6 | Keflavík | 25 | -10 | 29 |
