17.10.26 - 14:02
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Langþráður sigur Watford

Watford er komið aftur á sigurbraut

Mynd: WatfordFC

Watford er komið aftur á sigurbraut

Mynd: WatfordFC
Watford fagnaði langþráðum sigri í ensku B-deildinni í dag þegar liðið tók á móti Charlton á Vicarage Road.
Watford hafði tapað sex af síðustu átta leikjum sínum og var andrúmsloftið í kringum félagið orðið ansi þungt. Elton John, fyrrum eigandi Watford, hafði meðal annars lýst yfir vonbrigðum með stöðuna og núverandi eigendur sætt harðri gagnrýni.
Lundúnaliðinu tókst þó að rífa sig upp í dag með góðum 2-0 sigri á Charlton þar sem Luca Kjerrumgaard og Jordan Zemura skoruðu mörkin. Sigurinn lyfti Watford upp í 20. sæti deildarinnar með ellefu stig.
Middlesbrough kastaði hins vegar frá sér tækifærinu til að komast á toppinn þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Cardiff City á Riverside-leikvanginum.
Gestirnir frá Cardiff fóru með 2-0 forystu inn í hálfleikinn, en Middlesbrough svaraði með tveimur mörkum á aðeins þremur mínútum þegar Tommy Conway og Will Lankshear jöfnuðu metin. Cardiff missti síðan Gabriel Osho af velli með rautt spjald undir lokin, en gestirnir náðu að halda út og tryggja sér stig.
Middlesbrough er því áfram í öðru sæti með 22 stig, einu stigi á eftir toppliði Swansea, á meðan Cardiff situr í 17. sæti með ellefu stig.
Millwall og Lincoln skildu einnig jöfn, 2-2, í leik sem þróaðist með svipuðum hætti og viðureignin á Riverside. Gestirnir frá Lincoln komust í 2-0 í fyrri hálfleik, en Millwall náði að vinna upp forskotið og jafna metin.
Lincoln missti svo Deji Elerewe af velli með rautt spjald á 84. mínútu, en þrátt fyrir að vera manni færri síðustu mínúturnar tókst gestunum að halda í stigið.
Millwall er í ellefta sæti deildarinnar með 15 stig, en Lincoln situr í sextánda sæti með tólf stig.
Middlesbrough 2 - 2 Cardiff City
0-1 Jack Moylan ('22 )
0-2 Ollie Tanner ('45 )
1-2 Tommy Conway ('58 )
2-2 Will Lankshear ('61 )
Rautt spjald: Gabriel Osho, Cardiff City ('83)
Millwall 2 - 2 Lincoln City
0-1 Andrei Coubis ('1 )
0-2 Rob Street ('33 )
1-2 Kyrell Lisbie ('63 )
2-2 Jake Cooper ('82 )
Rautt spjald: Deji Elerewe, Lincoln City ('84)
Watford 2 - 0 Charlton Athletic
1-0 Luca Kjerrumgaard ('58 )
2-0 Jordan Zemura ('90 )

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Swansea | 11 | +9 | 24 |
| 2 | Middlesbrough | 11 | +6 | 22 |
| 3 | West Ham | 11 | +17 | 20 |
| 4 | Birmingham | 11 | +6 | 18 |
| 5 | QPR | 11 | +6 | 18 |
| 6 | Blackburn | 11 | +3 | 18 |
| 7 | Southampton | 11 | +11 | 17 |
| 8 | Wolves | 10 | +3 | 17 |
| 9 | West Brom | 11 | +1 | 17 |
| 10 | Stoke City | 11 | +1 | 17 |
| 11 | Sheffield Utd | 11 | +1 | 15 |
| 12 | Millwall | 11 | 0 | 15 |
| 13 | Bristol City | 11 | -3 | 14 |
| 14 | Bolton | 11 | -3 | 14 |
| 15 | Charlton Athletic | 11 | -5 | 14 |
| 16 | Portsmouth | 10 | -1 | 12 |
| 17 | Wrexham | 11 | -4 | 12 |
| 18 | Lincoln City | 11 | -10 | 12 |
| 19 | Cardiff City | 11 | +1 | 11 |
| 20 | Watford | 11 | -9 | 11 |
| 21 | Norwich | 11 | -3 | 10 |
| 22 | Burnley | 11 | -5 | 8 |
| 23 | Derby County | 11 | -10 | 7 |
| 24 | Preston NE | 11 | -12 | 5 |