Fotbolti.net
17.10.26 - 15:54
Haraldur Örn Haraldsson

Eiður Smári: Skiljanlega eru menn aðeins trektir

Auglýsing
Eiður Smári: Skiljanlega eru menn aðeins trektir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Við erum svekktir aðallega. Ég er ekki svekktur út í strákana heldur meira svekktur að hafa tapað þessum leik," sagði Eiður Smári Guðjohnsen þjálfari KA eftir 4-1 tap gegn Val í dag.

Lestu um leikinn: Valur 4 - 1 KA

„Ég hugsa að stærsta svekkelsið hjá okkur hafi verið að koma inn í hálfleik og vera ekki yfir. Mér fannst við gera nóg til að koma okkur yfir fyrir hálfleik og það hefði gert mikið fyrir okkur. Eigum skalla í slá og dauðafæri í kjölfarið á því, á einhvern óskiljanlegan hátt náum við ekki að koma boltanum yfir línuna. Svo voru kaflar þar sem ég hefði viljað sjá okkur gera betur, vera aðeins rólegri. Skiljanlega eru menn aðeins trektir, þetta er mikilvægur tími fyrir okkur og við erum allir bara jafn svekktir. Ég get ekkert verið að spá í einhverju fjórða marki sem við fáum á okkur, þegar við erum að taka gríðarlega sénsa fram á við til að reyna að ná inn marki. Því miður þá voru aðstæður í seinni hálfleik þannig að þær gáfu okkur ekki mikinn möguleika að spila okkur upp völlinn. Það er bara eins og þetta er, aðstæður voru eins fyrir bæði liðin. Vindurinn var með okkur í fyrri hálfleik, og við hefðum kannski átt að vera djarfari og nýta okkur það betur," sagði Eiður.

Valsarar komust yfir snemma í seinni hálfleik og komust tveimur mörkum yfir fljótlega eftir það. Það mátti þá finna fyrir ákveðinni örvæntingu í liði KA.

„Ég hugsa að það hafi aðallega komið eftir að Valur kemst yfir. Það er kannski það eina sem ég get verið svekktur með, er að það kemur innkast og boltinn fer yfir fyrsta mann sem á að ráðast á boltann, næsta mann sem á að ráðast á boltann. Það er ekki fyrr en þriðji varnarmaðurinn hjá okkur sem skallar hann. Að leyfa Tryggva að lúðra honum svo upp í vinkilinn, og lítið hægt að segja við afgreiðslunni, en aðdragandinn að markinu það er pínu svekkelsi," sagði Eiður.

KA er í fallsæti eftir úrslit dagsins, og eru einu stigi á eftir Þór þegar einn leikur er eftir. Þeir þurfa því að treysta á að Þórsarar tapi stigum í loka leiknum og að KA vinni ÍBV.

„Staðan er bara erfið alveg sama hvernig sá leikur (Þór-Stjarnan) fer. Staðan var erfið fyrir þennan leik, hún var það líka í síðustu viku og leiknum þar áður. Við vitum aðallega hvaða stöðu við erum í, og það er aðallega svekkelsi að hafa ekki tekið neitt með okkur héðan. Ég kem aftur inn á það, að fyrri hálfleikurinn, við hefðum átt að nýta okkur hann betur. Ég er ekki þar með að segja að við hefðum átt eitthvað skilið miðað við hvernig leikurinn þróast í seinni hálfleik. En það hefði breytt miklu fyrir okkur," sagði Eiður.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.