Fotbolti.net
17.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Evrópa í dag - Risaveldi á útivöllum

Evrópa í dag - Risaveldi á útivöllum
Canon

Mynd: EPA

Það er nóg um að vera í evrópska fótboltanum í dag þar sem stórveldin Atlético Madrid og Barcelona eiga útileiki í efstu deild á Spáni.
Atlético heimsækir Espanyol til Barcelona á meðan Börsungar ferðast suður til Sevilla til að spila við Antony og félaga í Real Betis.

Valencia og Athletic Bilbao mætast einnig í spennandi slag.

Í Frakklandi eiga meistararnir í liði Paris Saint-Germain útileik við Strasbourg, systurfélag Chelsea. PSG byrjaði franska deildartímabilið hikstandi en lærlingar Luis Enrique virðast vera komnir á skrið eftir frábæran sigur gegn Manchester City í miðri viku.

Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille eiga svo heimaleik við Brest eftir tap gegn Arsenal í Meistaradeildinni.

Í þýska boltanum eru það Freiburg og Borussia Dortmund sem deila óvænt toppsæti deildarinnar eftir fimm umferðir, tveimur stigum fyrir ofan Bayern sem er þegar búið að gera tvö jafntefli á deildartímabilinu.

Dortmund heimsækir Union Berlin í dag áður en stórveldi Bayern tekur á móti Leipzig. Lærlingar Vincent Kompany í liði Bayern mæta grimmir til leiks eftir að hafa gert óvænt jafntefli við Noregsmeistara Viking í Meistaradeildinni í vikunni.

Cole Campbell og félagar í Elversberg eiga heimaleik við Stuttgart.

La Liga
12:00 Espanyol - Atletico Madrid
14:15 Villarreal - Elche
16:30 Real Betis - Barcelona
19:00 Valencia - Athletic Bilbao

Ligue 1
15:15 Strasbourg - PSG
18:45 Lille - Brest
18:45 Troyes - Lens

Bundesliga
13:30 Union Berlin - Dortmund
13:30 Schalke 04 - Mainz
13:30 Hamburger - Stuttgart
13:30 Elversberg - Augsburg
13:30 Werder Bremen - Paderborn
16:30 FC Bayern - RB Leipzig
Evrópa í dag - Risaveldi á útivöllum
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Risaveldi á útivöllum
Canon

Mynd: EPA

Evrópa í dag - Risaveldi á útivöllum
Canon

Mynd: EPA

Bundesliga - karlar

#LiðLmunStig
1Freiburg5+1013
2Dortmund5+713
3Bayern5+1211
4Leverkusen5+610
5RB Leipzig5+109
6Augsburg5+58
7Werder508
8Frankfurt6-68
9Mainz5+37
10Elversberg507
11Köln6-37
12Stuttgart5-16
13Hamburger5-106
14Schalke 045-25
15Paderborn5-44
16Union Berlin5-124
17Hoffenheim5-43
18Gladbach5-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.