17.10.26 - 13:04
Brynjar Ingi Erluson
Fanney hélt hreinu í tíunda sinn - Fyrsti byrjunarliðsleikur Sóleyjar

Fanney hélt hreinu í tíunda sinn á þessu ári

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arna Eiríksdóttir og Fanney Inga Birkisdóttir fögnuðu 3-0 sigri með Vålerenga á Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í dag.
Fanney stóð á milli stanganna hjá Vålerenga á meðan Arna lék í hjarta varnarinnar.
Hin 18 ára gamla Tomine Enger skoraði tvö af mörkum Íslendingaliðsins, sem er í þriðja sæti deildarinnar með 38 stig, níu stigum á eftir toppliðunum Brann og Álasund.
Fanney hefur nú haldið hreinu tíu sinnum í deildinni og Evrópukeppni á þessu ári.
Sóley Edda Ingadóttir var í byrjunarliði Molde í fyrsta sinn í deildinni þegar liðið tapaði 2-0 fyrir Haugesund. Hún lék rúman klukkutíma áður en henni var skipt af velli, en Molde situr í níunda sæti deildarinnar með 18 stig.