Haraldur Freyr: Fram og til baka sem hefði geta dottið öðru hvoru megin

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík mætti KR á HS Orku vellinum í dag í næst síðustu umferð Bestu deild karla. Eftir úrslit dagsins er ljóst að Keflavík endar tímabilið í 6. sæti deildarinnar.
„Lélegur fyrri hálfleikur af okkar hálfu, vorum eftir á í öllum aðgerðum og KR-ingarnir voru bara útum allan völl á okkur og 0-2 staða í hálfleik" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir tapið í kvöld og hélt svo áfram.
„Seinni hálfleikur var allt annað upp á teningnum hjá okkur og við vorum miklu nær þeim og fórum út að hlaupa og berjast í seinni hálfleik og uppskárum tvö góð mörk snemma og staðan orðin 2-2 og hörku leikur"
„Fram og til baka sem hefði geta dottið að mínu mati öðru hvoru megin og við óheppnir að nýta ekki færin okkar sem við fengum í stöðunni 2-2 og þeir nýta svo eitt af sínum færum og klára leikinn"
Það vakti óneitanlega athygli að Eiður Orri Ragnarsson var ekki í byrjunarliði Keflavíkur í dag en hann kom svo inn með krafti og lagði upp bæði mörk Keflavíkur í dag.
„Á endanum er hann náttúrlega orðin leikmaður Víkings í janúar og þar af leiðandi farinn frá okkur þannig það er bara eðlilegt að við gefum öðrum mönnum tækifæri til þess að spila" sagði Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari Keflavíkur.
Nánar er rætt við Harald Freyr Guðmundsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 25 | +11 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 5 | ÍA | 25 | -3 | 34 |
| 6 | Keflavík | 26 | -11 | 29 |
