Fotbolti.net
17.10.26 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson

Ítalía í dag - Þórir og Mikael mæta reiðum stórveldum

Ítalía í dag - Þórir og Mikael mæta reiðum stórveldum
Canon

Mynd: Venezia FC

Það eru þrír leikir sem fara fram í efstu deild ítalska boltans í dag og mæta þrjú stórveldi til leiks sem töpuðu öll leikjum sínum í Meistaradeildinni í miðri viku.
Fjörið byrjar í Feneyjum þegar Þórir Jóhann Helgason og félagar í Venezia taka á móti Napoli, sem hefur ekki farið sérlega vel af stað í ítölsku deildinni og tapaði gegn Villarreal í miðri viku.

Ítalíumeistarar Inter heimsækja svo Bologna í síðdegisleiknum en þeir munu mæta grimmir til leiks eftir vandræðalegt tap á heimavelli gegn Club Brugge í miðri viku. Lautaro Martínez fyrirliði meiddist gegn Brugge og verður frá keppni í rúman mánuð.

Inter deilir toppsæti Serie A með Lazio sem stendur þar sem bæði lið eiga 16 stig eftir 6 umferðir. Inter er tveimur stigum fyrir ofan Roma sem fær Mikael Egil Ellertsson og félaga í heimsókn í síðasta leik dagsins.

Rómverjar hafa verið að gera frábæra hluti undir stjórn Gian Piero Gasperini og komust í 3-1 forystu gegn stórveldi Real Madrid í miðri viku, en enduðu á að tapa leiknum eftir ótrúlegan lokakafla.

Það verður fróðlegt að fylgjast með hvað stórveldin þrjú gera þegar þau mæta til leiks í dag og í kvöld eftir tapleikina í Meistaradeildinni.

Leikir dagsins
13:00 Venezia - Napoli
16:00 Bologna - Inter
18:45 Roma - Genoa
Ítalía í dag - Þórir og Mikael mæta reiðum stórveldum
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter6+1016
2Lazio6+716
3Roma6+1114
4Frosinone7+413
5Cagliari6+313
6Milan6+612
7Juventus6+411
8Como6+311
9Napoli6+410
10Atalanta609
11Sassuolo7-28
12Torino6-27
13Lecce6-66
14Bologna6-25
15Udinese6-44
16Monza6-64
17Genoa6-64
18Parma6-64
19Fiorentina6-74
20Venezia6-110
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.