17.10.26 - 15:06
Brynjar Ingi Erluson
Ítalía: Þórir Jóhann lék í kærkomnum sigri á Napoli

Þórir Jóhann spilaði síðustu tuttugu mínúturnar með Venezia

Mynd: Venezia

Venezia 1 - 0 Napoli
1-0 Akor Adams ('49 )
1-0 Kevin De Bruyne ('68 , Misnotað víti)

Þórir Jóhann Helgason og félagar hans í Venezia fögnuðu sínum fyrsta sigri á tímabilinu þegar þeir lögðu Napoli að velli, 1-0, í Seríu A á Ítalíu í dag.
Framherjinn Akor Adams skoraði eina mark leiksins á 49. mínútu er hann náði að vinna boltann í teignum áður en hann lagði hann fyrir sig og skoraði.
Rasmus Höjlund og Kevin de Bruyne komu inn af bekknum hjá Napoli á 54. mínútu og aðeins nokkrum mínútum síðar fengu gestirnir vítaspyrnu. De Bruyne fór á punktinn en Filip Stankovic sá við honum og varði spyrnuna.
Þórir Jóhann kom inn á hjá Venezia þegar tuttugu mínútur voru eftir og hjálpaði sínum mönnum að halda fengnum hlut og tryggja langþráðan sigur.
Venezia situr enn á botni deildarinnar en er nú komið með þrjú stig, á meðan Napoli er í níunda sæti með tíu stig.