KR tryggði sér annað sætið: „Sá það á mönnum að þeir voru staðráðnir í því"

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tryggði sér annað sæti Bestu deild karla í dag þegar þeir unnu góðan sigur á Keflavík á HS Orku vellinum í dag.
„Fyrst og fremst bara gríðarlega stoltur af liðinu að hafa klárað þennan leik" sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari KR eftir sigurinn í dag.
„Fyrri hálfleikurinn var framúrskarandi góður en svo koma þeir skakkir út í seinni hálfleik og þeir koma mjög sterkir"
„Þeir koma tvíefldir eftir tvöfalda skiptingu og komu sér inn í leikinn aftur en mér fannst við standa sterkt upp eftir þau tvö kjaftshögg og þetta voru í raun bara sanngjörn úrslit"
Leikir þessara liða í sumar hafa allir endað með sömu markatölu og verið mjög skemmtilegir leikir.
„Það er búið að vera gaman að fylgjast með Keflavíkurliðinu, þeir eru búnir að eiga flott tímabilog geta verið virkilega stoltir af frammistöðunni í sumar"
„Þetta eru búnir að vera þrír hörku leikir. Við vorum ekkert sérstaklega góðir í fyrsta leiknum í Frostaskjólinu sem við unnum 3-2. Þetta var mjög jafn leikur hérna um mitt sumar þegar við töpuðum 3-2 en heilt yfir þá held ég að þessi leikur í dag hafi verið okkar besti leikur á móti Keflavík"
„Ég er mjög stoltur af liðinu við þessar aðstæður að hafa komið með þessa frammistöðu og sýndu að þeim væri ekki sama. Við gátum tryggt annað sætið í dag með sigri og ég sá það á mönnum að þeir voru staðráðnir í því" sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson.
Nánar er rætt við Óskar Hrafn Þorvaldsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta karla - Efri hluti
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 26 | +51 | 63 |
| 2 | KR | 26 | +30 | 53 |
| 3 | Fram | 25 | +11 | 46 |
| 4 | Breiðablik | 26 | +2 | 36 |
| 5 | ÍA | 25 | -3 | 34 |
| 6 | Keflavík | 26 | -11 | 29 |
