Fotbolti.net
17.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mia San Ísland hittist á Ölver í dag

Mia San Ísland hittist á Ölver í dag
Canon

Mynd: EPA

FC Bayern München klúbburinn á Íslandi hefur ákveðið að skipta um gír eftir að hafa legið í dvala síðustu ár.
Halldór Jörgen Olesen er stjórnarformaður klúbbsins á meðan Christof Wehmeier einbeitir sér að starfi markaðs- og kynningarfulltrúa hjá klúbbnum.

Klúbburinn ætlar að hittast á Ölver einni klukkustund fyrir spennandi stórleik FC Bayern gegn RB Leipzig í þýsku deildinni í dag. Leikurinn hefst klukkan 16:30.

Ölver hefur verið titlaður sem höfuðstöðvar Mia San Ísland klúbbsins.

Facebook síða Mia San Ísland

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.