17.10.26 - 11:07
Brynjar Ingi Erluson
Mourinho kemur Vini Jr til varnar: Ég hefði ekki haft þolinmæði til að vera áfram

Jose Mourinho og Vini Jr

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Jose Mourinho og Vini Jr

Mynd: EPA
Jose Mourinho, þjálfari Real Madrid á Spáni, segist efast um að hann hefði verið áfram hjá félaginu ef hann hefði þurft að þola allt sem brasilíski leikmaðurinn Vini Jr hefur þurft að ganga í gegnum.
Á dögunum var Vini Jr dæmdur í fjögurra leikja bann fyrir að toga í hár Nathan Saliba, leikmanns Villarreal, og missir því af El Clasico.
Vini Jr hefur þurft að þola ýmislegt á ferli sínum hjá Real Madrid og Mourinho er ekki viss um að hann sjálfur hefði haft þolinmæði til að takast á við það virðingarleysi sem Brassinn hefur orðið fyrir.
„Hann er yndislegur ungur maður og það er auðvelt að mynda góð tengsl við hann. Ég eyði nokkrum mínútum með honum í einrúmi á hverjum degi og kann gríðarlega vel að meta hann, ekki síst vegna þess að honum tekst alltaf að halda áfram með bros á vör.“
„Ef ég væri í hans sporum hefði ég líklega ekki verið áfram. Ég hefði þrýst á félagið að leyfa mér að fara til annars lands þar sem mér væri sýnd virðing, en hann ákvað að vera áfram vegna ástar sinnar á félaginu.“
„Hann trúir því að ástandið muni batna og þess vegna heldur hann áfram að brosa. Enginn og ekkert getur tekið þetta bros af honum,“ sagði Mourinho.
Mourinho ræddi einnig ákvörðun Vini Jr um að framlengja samning sinn við Real Madrid þrátt fyrir allt sem hann hefur þurft að ganga í gegnum.
„Þetta eru einkasamtöl okkar á milli, en þegar hann framlengdi samninginn sagði hann að Real Madrid væri heimili hans og að hann hefði enn metnað til að halda áfram að skrifa söguna og vinna titla.“
„Hann er í góðu sambandi við alla í búningsklefanum og er algjör gleðigjafi. Ég efast stórlega um að ég hefði haft sama styrk til að vera hér áfram, sérstaklega með öll þau tilboð sem hann hefur fengið,“ sagði Mourinho.