Fotbolti.net
17.10.26 - 15:17
Brynjar Ingi Erluson

Stórsigur hjá Kristianstad

Alexandra og stöllur hennar í Kristianstad skoruðu fimm

Alexandra og stöllur hennar í Kristianstad skoruðu fimm

Canon

Mynd: Kristianstad

Kvennaboltinn
Íslendingalið Kristianstad vann 5-0 stórsigur á Uppsala í sænsku úrvalsdeildinni í dag.
Alexandra Jóhannsdóttir, Guðný Árnadóttir og Elísa Lana Sigurjónsdóttir voru allar í byrjunarliði Kristianstad sem gjörsamlega valtaði yfir Uppsala.

Þetta var annar deildarsigur Kristianstad í röð, en liðið er í fjórða sæti deildarinnar með 35 stig.

Hlín Eiríksdóttir kom inn af bekknum hjá Malmö sem vann 3-2 sigur á AIK, þar sem Ásdís Karen Halldórsdóttir var í byrjunarliðinu.

Hlín spilaði síðustu tuttugu mínúturnar fyrir Malmö, sem er í þriðja sæti með 42 stig. AIK situr í fimmta sæti með 34 stig.

Eyrún Embla Hjartardóttir bar fyrirliðabandið hjá varaliði Häcken sem tapaði 2-0 fyrir Alingsås í sænsku B-deildinni. Häcken situr á botni deildarinnar með átta stig.

Andrea Rut Bjarnadóttir og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir voru báðar í byrjunarliði Anderlecht sem vann 3-1 sigur á Leuven í belgísku úrvalsdeildinni. Andrea lagði upp annað markið og þá kom Vigdís að þriðja markinu. Anderlecht er á toppi deildarinnar með 15 stig eftir sex umferðir.

Íris Ómarsdóttir skoraði mark Fiorentina í 1-1 jafntefli gegn Como í ítölsku úrvalsdeildinni, en hún og Katla Tryggvadóttir voru báðar í byrjunarliði Flórensarliðsins sem er í fjórða sæti með fjögur stig.

Diljá Ýr Zomers lék allan leikinn fyrir Brann sem gerði 1-1 jafntefli við Rosenborg í norsku úrvalsdeildinni. Selma Sól Magnúsdóttir sat hins vegar allan tímann á varamannabekk Rosenborg.

Jafnteflið var nokkurt áfall fyrir Brann í toppbaráttunni, en liðið heldur þó efsta sætinu með 48 stig, einu stigi meira en Álasund. Rosenborg er í 3. sæti með 39 stig, níu stigum frá toppnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.