17.10.26 - 12:11
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland heimsmeistari í flokki 80 ára og eldri

Mynd: Der Spiegel

Mynd: Der Spiegel
Þýska landsliðið, sem er skipað leikmönnum 80 ára og eldri, hefur tryggt sér heimsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2026.
Spánverjar urðu heimsmeistarar í fótbolta í sumar, en þegar kemur að flokki 80 ára og eldri eru það Þjóðverjar sem geta státað af heimsmeistaratitlinum.
Þýskaland tryggði sér titilinn með 2-0 sigri á Bandaríkjunum í úrslitaleik mótsins, sem fór fram í Cleveland í Ástralíu.
Þýska liðið var skipað átta leikmönnum og voru leikirnir tvisvar sinnum 30 mínútur. Til að komast alla leið þurftu Þjóðverjar meðal annars að spila tvo leiki á einum degi, en að sögn Michael Rätsch, sem leikur með Herthu Berlín, var 2-1 sigurinn gegn Japan erfiðasta viðureignin.
„Þetta eru allt fótboltamenn sem spila reglulega og reyndum við að nýta okkur taktíkina til að ná árangri,“ sagði Rätsch.
Þjóðverjar fóru alla leið í úrslit þar sem þeir lögðu Bandaríkjamenn að velli og segir Rätsch að leikmenn hafi komið nokkuð vel undan mótinu, þótt sólin hafi tekið sinn toll.
„Við erum allir rauðir og sólbrunnir, en við létum það ekki stoppa okkur,“ sagði hann.
Rätsch skoraði meðal annars sigurmarkið gegn Japan fyrr í mótinu, en nú tekur við undirbúningur fyrir Evrópumótið sem fer fram á næsta ári.
„Við þurfum að fá fleiri úr eldri kynslóðinni til að stunda íþróttir,“ sagði Rätsch að lokum.

Dieses Team war einfach reif für den Titel: Die deutsche Ü80-Nationalmannschaft hat sich in Australien den WM-Pokal gesichert. Auch ein kollektiver Sonnenbrand trübte die Freude nicht. Link in X-Bio. https://t.co/J4qX9ZvK8H
— DER SPIEGEL (@derspiegel) October 17, 2026