Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 17. nóvember 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Íþróttaeldhugi ársins valinn í fyrsta sinn
Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslendingar eru hvattir til að senda inn ábendingar um eftirtektarverða sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni hér á landi. Það verða ný verðlaun veitt í kjöri á Íþróttamanni ársins 2022 sem nefnast Íþróttaeldhugi ársins.


Almenningur hefur tíma til 5. desember til að senda inn ábendingar um sjálfboðaliða áður en lokað verður fyrir. Hægt er að senda inn ábendingar á þessari vefslóð hér

Það er Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands sem stendur fyrir þessari nýbreytni í samstarfi við Lottó.

„Leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna í framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttafélaga kemur ekki til greina," segir meðal annars í yfirlýsingu frá ÍSÍ.

„Íþróttastarfið á Íslandi stendur í mikilli þakkarskuld við þá einstaklinga sem gefið hafa af tíma sínum til að sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Með þessari viðurkenningu viljum við lyfta upp starfi sjálfboðaliðans og þakka fyrir hið óeigingjarna starf sem unnið er af fjölda fólks um land allt. Við hvetjum einstaklinga til að senda inn tilnefningar,” segir Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ.

Sérstök valnefnd, sem tekur á móti ábendingum og vinnur úr þeim, hefur verið skipuð. Í henni sitja: Þórey Edda Elísdóttir formaður, Bjarni Friðriksson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir.

Valnefndin mun fara yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2022. Íþróttaeldhugi ársins 2022 fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.


Athugasemdir
banner
banner
banner