Fotbolti.net
16.11.26 - 21:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
- Laugardalsvelli

Fengið mikið af skilaboðum frá virtu fólki í bransanum

Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen í faðmlögum.

Orri Steinn Óskarsson og Andri Lucas Guðjohnsen í faðmlögum.

Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, sagði á fréttamannafundi í kvöld að hann hefði fengið fjölda skilaboð frá mikilsvirtum einstaklingum innan fótboltageirans eftir flotta frammistöðu leikmanna Íslands upp á síðkastið.

Strákarnir enduðu árið með stæl þar sem þeir unnu Búlgaríu 0-5 og Lúxemborg 3-0 í síðasta glugga ársins.
Fréttamaður Fótbolta.net spurði Arnar á fundinum út í Andra Lucas Guðjohnsen og Orra Stein Óskarsson, framherja Íslands, sérstaklega. Arnar talaði um það á fréttamannafundi þegar hann tilkynnti hópinn að hann væri til í að sjá þessa leikmenn í ensku úrvalsdeildinni og þá sérstaklega hjá sínu félagi, Manchester United.

Hvað núna þá? Andri Lucas skoraði þrennu gegn Búlgaríu og Orri kom að öllum mörkum Íslands í kvöld gegn Lúxemborg.

Þú sagðir þegar þú kynntir hópinn að þú værir spenntur fyrir því að sjá Andra og Orra spila í United. Hvað finnst þér eftir þennan landsleikjaglugga?

„Þeir eru bara að spila á mjög háu stigi," sagði Arnar. „Ég get sagt þér að ég hef fengið mikið af skilaboðum eftir Búlgaríuleikinn og mun örugglega fá fleiri eftir þennan leik frá mjög virtu fólki í bransanum. Þar á meðal þjálfurum hjá góðum liðum, fyrrverandi leikmönnum og landsliðsþjálfurum. Þeim finnst mjög áhrifamikið það sem við erum að gera. Þeir fylgjast vel með þessum leikmönnum og spyrja mikið um nokkra þeirra. Það er gríðarlega ánægjulegt að sjá hversu vel strákarnir standa sig bæði með landsliðinu og félagsliðunum sínum."

„Vonandi skila félagsliðin þeim til okkar í góðu formi og við skilum þeim aftur til baka í sama gír. Þetta hefur verið frábært að fylgjast með, sérstaklega hversu margir strákar hafa tekið gríðarlega stór skref á síðustu 18 mánuðum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.