17.11.26 - 12:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Aron Birkir með betri skotfót en Yamal og Mbappe

Aron Birkir Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Birkir Stefánsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýi Football Manager leikurinn var að koma út á dögunum en um er að ræða tölvuleik sem er vinsæll á meðal fótboltaáhugamanna um allan heim.
Í leiknum fá leikmenn tölur frá 1-20 út frá því hversu góðir þeir eru í ákveðnum atriðum leiksins. Þeir sem standa að baki Football Manager hafa verið þekktir fyrir það í gegnum tíðina að vera góðir að greina leikmenn.

Því er athyglisvert að í nýja leiknum eru tveir íslenskir leikmenn á meðal þeirra sem eru með besta skotfótinn í leiknum, og annar þeirra er markvörður.
Það er Aron Birkir Stefánsson, markvörður Þórs. Hann skoraði stórkostlegt mark í leik með Þór gegn KR í Bestu deildinni síðastliðið sumar frá sínum eigin vallarhelmingi.
Samkvæmt leiknum er Aron Birkir með betri skotfót en til dæmis Lamine Yamal og Kylian Mbappe.
Haraldur Ágúst Brynjarsson, ungur leikmaður Víkings, er einnig á meðal þeirra sem eru með besta skotfótinn í leiknum og er hann á pari við Aron Birki, Michael Olise og Hakan Calhanoglu.