Heimild: Reuters
Brasilíski varnarmaðurinn Lucio hefur komist að samkomulagi við Juventus um að fá sig lausan undan samningi.
Lucio kom til Juventus frá Inter í sumar en hann hefur einungisleikið fjóra leiki á þessu tímabili.
,,Ævintýri Lucio í svarthvítu treyjunni er á enda," sagði Juventus í yfirlýsingu á heimasíðu sinni í dag.

Lucio, sem er 34 ára, var í sigurliði Brasilíumanna á HM 2002 og í liði Inter sem vann Meistaradeildina fyrir tveimur árum.
Hann hefur auk Inter leikið með FC Bayern og Bayer Leverkusen í Þýskalandi á ferli sínum.
Athugasemdir