Fotbolti.net
18.01.20 - 21:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Rashford kom ekki með hópnum á liðshótelið í kvöld

Rashford er að glíma við meiðsli.

Rashford er að glíma við meiðsli.

Canon

Mynd: Getty Images

Það er spurning hvort Marcus Rashford verði í leikmannahóp Manchester United gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á morgun.
Leikmenn Manchester United mættu á Lowry-hótelið í kvöld fyrir leik sinn gegn Liverpool á morgun. Rashford var ekki á meðal þeirra leikmanna sem mættu á hótelið.

Rashford fór af velli gegn Wolves í enska bikarnum í vikunni vegna bakmeiðsla. Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, sagði í gær að hann væri ekki bjartsýnn á að Rashford myndi spila gegn Liverpool.

Þó hann sé ekki með hópnum í kvöld er ekki útilokað að hann spili á morgun. Það mun koma betur í ljós þegar nær dregur.

Þessir leikmenn mættu á hótelið: De Gea, Romero, Grant, Jones, Wan-Bissaka, Lindelof, Williams, Bailly, Maguire, Dalot, Shaw, Lingard, Matic, Fred, Pereira, Gomes, Mata, Chong, James, Martial, Greenwood.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.