Arsenal og Newcastle United eigast við í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en leikurinn hefst klukkan 20:00 og fer fram á Emirates-leikvanginum í London.
Thomas Partey og Kieran Tierney eru í liði Arsenal. Partey hefur verið að glíma við meiðsli frá því hann kom til félagsins frá Atlético Madríd og er þetta fyrsti byrjunarliðsleikur hans síðan hann spilaði gegn Tottenham í byrjun desember.
Steve Bruce, stjóri Newcastle, gerir átta breytingar á liði sínu en Andy Caroll, Joelinton, Callum Wilson og Miguel Almiron eru allir í byrjunarliðinu.
Arsenal: Leno, Tierney, Cedric, Luiz, Holding, Partey, Xhaka, Smith Rowe, Saka, Lacazette, Aubameyang
Newcastle: Darlow, Krafth, Lewis, Clark, Lascelles, M. Longstaff, Shelvey, Almiron, Joelinton, Wilson, Carroll
Athugasemdir