Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 18. janúar 2022 06:00
Elvar Geir Magnússon
Heimild: KSÍ 
Ísbjörninn er Íslandsmeistari í Futsal
Mynd: Ísbjörninn
Ísbjörninn er Íslandsmeistari í Futsal í meistaraflokki karla í fyrsta sinn eftir 6-4 sigur á Augnabliki í framlengdum úrslitaleik sem fram fór í Kórnum í Kópavogi um síðustu helgi.

Leikurinn var hin besta skemmtun og var í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Eins og svo oft í Futsal-leikjum er nóg um mörk og sú var einnig raunin í undanúrslitaleikjunum. Ísbjörninn vann 7-5 sigur á Kríu í undanúrslitum en Augnablik vann 8-6 sigur gegn Vængjum Júpíters.

Úrslitaleikurinn var svo jafn og spennandi og skiptust liðin á að leiða. Eftir æsispennandi lokamínútur var ljóst að framlengja þurfti leikinn og þar reyndust Ísbirnirnir sterkari og fögnuðu þeir Íslandsmeistaratitlinum vel og innilega í leikslok.
Athugasemdir
banner