Crystal Palace mætir Manchester United á Selhurst Park í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Það hefur lítið gengið upp hjá Palace að undanförnu en liðið hefur tapaði sjö af síðustu tíu leikjum í öllum keppnum.
„Það er pirrandi þegar fólk segir að við spilum vel en við vinnum ekki leiki. Við viljum ekki vera liðið sem spilar góðan fótbolta en nær ekki í úrslit, það verður að breytast. Við viljum spila vel en fótbolti snýst um að vinna," sagði Patrick Vieira stjóri Crystal Palace.
Palace vann Manchester United í lokaumferðinni á Selhust Park á síðustu leiktíð.
„United er allt annað lið núna. Þeir finna leiðir til að spila vel og vinna leiki. Frammistaðan er stöðug og þess vegna eru þeir á þeim stað sem þeir eru í töflunni. Með stuðningnum sem við höfum hér heima vitum við að við getum unnið hvaða lið sem er," sagði Vieira.