Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 18. febrúar 2020 11:30
Magnús Már Einarsson
Félög sýna Saka áhuga - Arsenal reynir að framlengja
Mynd: Getty Images
Arsenal er að reyna að ganga frá nýjum fimm ára samningi við Bukayo Saka eftir góða frammistöðu hans á tímabilinu.

Saka er með 3000 pund í laun á viku (500 þúsund krónur) sem er miklu lægra en liðsfélagar hans fá.

Saka á eitt og hálft ár eftir af samningi sínum en félög eins og Liverpool, Manchester United og Bayern Munchen hafa sýnt honum áhuga.

Arsenal vill ganga frá nýjum samningi sem fyrst og frekari viðræður eru fyrirhugaðar í vikunni.
Athugasemdir
banner
banner