Fotbolti.net
18.04.19 - 16:13
Þorgeir Leó Gunnarsson

Magnús Már: Spennandi að sjá hvað við fáum

Auglýsing
Magnús var ánægður með leik sinna manna.

Magnús var ánægður með leik sinna manna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding tryggði sér í dag sæti í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla með 3-2 sigri á Selfoss. Magnús Már Einarsson aðstoðarþjálfari Aftureldingar stýrði liði sínu einn í dag þar sem Arnar Hallsson aðalþjálfari liðsins var staddur erlendis. Magnús sagðist vera ánægður með leik sinna manna „Ég bjóst við hörkuleik eins og úr varð og er þess vegna ánægður að hafa landað þessu"
Magnús fagnar því að fara áfram í bikarnum og fá fleiri alvöru leiki í kjölfarið „Klárlega gaman að fara áfram. Mjög gaman hérna í fyrra þar sem við mættum KR í 32-liða úrslitum og það verður spennandi að sjá hvað við fáum þegar dregið verður í næstu viku og vonandi verður bara komin stúka hérna í Mosfellsbæinn" Sagði Magnús léttur í bragði.



Nánar er rætt við Magnús í viðtalinu hér að ofan. 
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.