Liverpool og Man Utd berjast um miðjumann - Klopp tekur ekki við Real Madrid - Bayern hefur áhuga á Gordon
   lau 18. apríl 2026 22:05
Brynjar Ingi Erluson
Rosenior: Hann grét í hálfleik
Liam Rosenior
Liam Rosenior
Mynd: EPA
Estevao grét í hálfleik
Estevao grét í hálfleik
Mynd: EPA
Liam Rosenior, stjóri Chelsea, segist enn hafa trú á því að liðið geti náð Meistaradeildarsæti á þessari leiktíð þrátt fyrir að hafa tapað fjórum deildarleikjum í röð.

Chelsea tapaði fyrir Manchester United, 1-0, á Stamford Bridge í kvöld.

Heimamenn voru betri aðilinn en nýttu ekki þau ótal færi sem þeir fengu en United þurfti bara eitt skot á markið til þess að taka öll stigin.

„Það er erfitt að kyngja þessum úrslitum. Þeir áttu eitt skot á markið þegar við vorum manni færri. Við höfum á meðan sett boltann í tréverkið fjórum eða fimm sinnum. Við getum ekki farið í þá hringiðu að vorkenna sjálfum okkur heldur verðum við að snúa gengi liðsins við.“

„Ég sá lið sem var með yfirráð frá fyrstu mínútu og fram að þeirri síðustu,“
sagði Rosenior.

Brasilíski vængmaðurinn Estevao meiddist í fyrri hálfleik og þurfti að fara af velli.

„Hann var í rusli og grét í hálfleik. Það er útlit fyrir að þetta hafi verið meiðsli aftan í læri. Þetta eru allt heiðarlegir, vinnusamir og góðir strákar. Ég vil ekki að þeir haldi að heimurinn sé á móti þeim.“

Rosenior hefur ekki tapað trúnni. Hann telur Chelsea enn eiga raunhæfan möguleika á að komast í Meistaradeildina. Það er fjórum stigum frá Liverpool sem er í fimmta sætinu, en Liverpool getur aukið forystuna í sjö stig þegar það heimsækir Everton á morgun.

„Þetta er fjall sem við þurfum að klífa og er alls ekki óyfirstíganlegt.“

„Ég veit ekki hvaða afleiðingar það hefur ef við komumst ekki í Meistaradeildina. Við munum taka á því í lok tímabils.“

„Fólk vill ekki hlusta á mig segja hversu vel við spiluðum þegar við töpum síðan leiknum. Raunveruleikinn er sá að Man Utd átti eitt skot á markið gegn tíu mönnum og það hefði aldrei átt að gerast,“
sagði Rosenior.
Slapp
banner
banner
banner