18.05.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mikill áhugi frá Bayern á Magnúsi Ottesen

Hefur skorað sex mörk í sex leikjum fyrir yngri landsliðin.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þýska risaliðið Bayern München hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net mikinn áhuga á Magnúsi Daða Ottesen leikmanni Fylkis.
Magnús er mjög efnilegur sóknarmaður, fæddur 2010, og fór síðasta haust á reynslu til Bayern sem hefur haldið áfram að fylgjast með kappanum.
Hann hefur nú fengið annað boð um að fara út til þýska félagsins á reynslu og yrði það í ágúst.

TENGT EFNI
Magnús Daði stóð sig vel hjá Bayern
Hann varð síðata haust yngsti leikmaðurinn til að spila með Fylki og hefur komið inn á sem varamaður í fyrstu þremur leikjunum í Lengjudeildinni.
Magnús Daði er sonur Sölva Geirs Ottesen og Söndru Karlsdóttur. Sandra lék á sínum ferli með Breiðabliki og ÍBV. Sölvi er í dag þjálfari Víkings og var á sínum ferli bæði landsliðs- og atvinnumaður erlendis.