Fotbolti.net
18.06.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Rooney um Tuchel: Bestu stjórarnir taka áhættur

Rooney um Tuchel: Bestu stjórarnir taka áhættur
Canon

Mynd: EPA

England vann sterkan 4-2 sigur á Króatíu í fyrstu umferð riðlakeppni heimsmeistaramótins í gær.

Thomas Tuchel, landsliðsþjálfari Englands, gerði skiptingu í stöðunni 3-2 þar sem Marcus Rashford, Bukayo Saka og Morgan Rogers komu inn á. Rashford innsiglaði sigurinn eftir sendingu frá Saka.

Wayne Rooney var mjög hrifinn af þessari skiptingu hjá Tuchel.
„Þegar ég sá að Rashford, Saka og Rogers voru að koma inn á sagði ég: 'Ég elska þetta'. Ég elska hvernig Tuchel var að hugsa jákvætt. Ef þú situr til baka og bíður eftir Króötum, þá verður þetta stressandi," sagði Rooney.

„Þetta sýnir hugrekki, sýnir að hann ætlar að reyna vinna leikinn. Svo kemur Spence inn á og þeir eiga allir þátt í markinu."

„Bestu stjórarnir taka áhættur. Staðan er 3-2 og Tuchel gerir þessar breytingar. Króatía hefði getað jafnað og þá hefði fólk sagt af hverju hann hafi ekki sett varnarsinnaðan mann inn á. Hann tók áhættu til að reyna vinna og það skilaði sér."
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.