Fotbolti.net
18.07.20 - 19:39
Atli Arason

Baldvin Ólafsson: Fyrsta sjálfsmarkið á ferlinum

Auglýsing
Baldvinn Ólafsson í leik með Magna

Baldvinn Ólafsson í leik með Magna

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Lengjudeildin
Baldvin Ólafsson, leikmaður Magna, skoraði afar óheppilegt sjálfsmark í 2-1 tapleiknum gegn Leikni Reykjavík í Lengjudeildinni í dag. Baldvin var að vonum svekktur í leikslok og bað liðsfélaga sína afsökunar.

„Þetta er mjög fúlt. Sérstaklega fyrir aulann sem skoraði sjálfsmarkið. Það er alls ekkert fjör. Leiðinlegt að taka þetta af drengjunum þar sem að þetta var mjög góður leikur af okkar hálfu fannst mér. Alvöru barátta og effort hjá drengjunum, þannig þetta er hrikalega fúlt. Ég er búinn að búinn að biðja drengina afsökunar á þessu fyrir minn part í þessu," sagði Baldvin hálf niðurlútur í viðtali eftir leik.
„Þetta er fyrsta sjálfsmarkið á ferlinum hjá mér. Ég meira að segja talaði um það við mágkonu mína í vikunni að ég hefði aldrei skorað sjálfsmark. Þannig þetta er risastórt karma fyrir að hafa verið með smá stæla," sagði Baldvin.

Markið sem Baldvin skoraði var afar furðulegt, aðspurður hvernig markið hafi litið út frá hans sjónarhorni sagði Baldvin: „Ég sá ekki fyrir aftan mig, ég ætlaði bara að hreinsa hann í horn af því ég hélt að það væri hundrað manns fyrir aftan mig. Stubbur segir að hann hafi kýlt boltann í andlitið á sjálfum sér og svo hafi boltinn fallið fyrir. Ég ætlaði að vippa boltanum fram hjá stönginni, en ekki upp í skeytin."

Viðtalið við Baldvin í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.