Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 18. júlí 2021 08:00
Victor Pálsson
Tomori finnur ekki fyrir pressu
Mynd: Getty Images
Fikayo Tomori finnur ekki fyrir pressu eftir að hafa skrifað undir samning við ítalska stórliðið AC Milan.

Tomori kostar Milan 25 milljónir punda en hann kemur til félagsins frá Chelsea á Englandi.

„Það er engin pressa. Það er gott að finna fyrir trausti í kringum mig, þetta er rétta verkefnið," sagði Tomori.

„Allir hafa tekið vel á móti mér frá fyrsta degi. Þetta er frábært félag með stórkostlega æfingaaðstöðu. Það er allt hér til að þroskast og vinna."

„Það er ekkert ómögulegt, við spilum til að vinna. Við erum með ungt lið og erum að bæta okkur."
Athugasemdir
banner
banner