Fotbolti.net
23.08.26 - 23:04
Brynjar Ingi Erluson

Hull gerði grín að Man Utd eftir óvænta sigurinn

Hull gerði grín að Man Utd eftir óvænta sigurinn
Canon

Mynd: EPA

Samfélagsmiðlateymi Hull City gerði góðlátlegt grín að Manchester United og stuðningsmönnum félagsins eftir 2-0 sigur nýliðanna í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.
England: Martraðarbyrjun hjá Man Utd
TENGT EFNI

England: Martraðarbyrjun hjá Man Utd

Nýliðar Hull komu öllum á óvart og unnu Manchester United með tveimur mörkum í fyrri hálfleik frá varnarmönnunum Semi Ajayi og Nobel Mendy.

Myndbandið hefst á því að hinn hárprúði stuðningsmaður United, Frank Ilett, segist hafa rosalega góða tilfinningu fyrir leiknum. Síðan má sjá klippur af öðrum þekktum stuðningsmanni félagsins, Mark Goldbridge, missa sig yfir mörkum Hull.

Stuðningsmenn Hull sungu hástöfum: „Tígrarnir eru að tæta ykkur í sig,“ en gælunafn félagsins er einmitt The Tigers.

Lagið Trap Queen með rapparanum Fetty Wap hljómar undir myndbandinu. Í lögum sínum vísar hann reglulega í töluna 1738, sem tengist koníakinu Remy Martin 1738.

Valið á laginu var engin tilviljun. Ajayi skoraði á 17. mínútu og Mendy á 38. mínútu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.