Fotbolti.net
23.08.26 - 23:07
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Gunnar Vatnhamar kveður Víkina: Vonandi verður þetta ár alveg jafn gott

Auglýsing
Gunnar Vatnhamar, leikmaður Víkings

Gunnar Vatnhamar, leikmaður Víkings

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er ánægður með frammistöðuna, mér fannst við gera þetta vel. Þetta var góð liðsframmistaða varnarlega, vinnuframlag var mjög gott og það skóp sigurinn í dag,“ sagði Gunnar Vatnhamar eftir 2-0 sigur gegn Val í Víkinni í dag.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 2 - 0 Valur

Víkingar hafa aðeins verið að hiksta í leikjunum sem þeir hafa spilað í miðjum Evrópuverkefnum hingað til en frammistaðan í dag var góð.

„Já mér fannst það. Lið fara alltaf í gegnum hæðir og lægðir og við þurfum að bæta eitthvað eftir hvern leik en auðvitað er mikið leikjaálag en það er engin afsökun, við vitum hverju við erum góðir í og við þurfum að halda áfram að bæta okkur.“

Gunnar, sem fékk heiðursskiptingu í lok leiks, hefur spilað sinn síðasta leik í Víkinni en hann heldur til danska félagsins Vejle eftir seinni leikinn gegn Borac Banja Luka á fimmtudaginn. Aðspurður hvort að þetta væri hans síðasti leikur í Fossvoginum segir hann:

„Já, þetta er minn síðasti leikur og þetta er búið að vera frábært. En nú látum við okkur hlakka til leiksins gegn Borac og við viljum vinna þann leik, meira en 2-0 svo við förum áfram.“

Gunnar er dáður í Víkinni og stóðu stuðningsmenn Víkings lengi eftir leik og sungu lagið hans en Gunnar sjálfur hlýtur að vera sáttur með sinn tíma í Víkinni:

„Já ég er mjög ánægður, við höfum farið í gegnum hæðir og lægðir. Eftir þrjú ár, mér finnst við hafa átt góð þrjú ár og vonandi verður þetta ár alveg jafn gott.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.